|
Lífið eins og við sjáum það Hugleiðingar Dandýar |
|
16.05.2012 07:33VeturkonungurÞað er ekki laust við að júllurnar á manni frjósi í þessu kuldakasti sem hrjáir okkur Íslendinga þessa dagana þegar maður fer út í morgunsárið. Kelling fór nú samt í föðurlandið að ofan og setti auka hita hlífar í hvern vasa en nei manni varð bara ekkert heitt. Í morgun mættu 30 manns og var ógisslega gaman. Mér var samt kalt og ég er samt þreytt. á morgun verða fáir enda er frídagur. :) mæli samt með því að fólk sé ekkert að liggja of mikið á koddanum. nenene Skrifað af Dandý 13.05.2012 15:29Þórdalsheiðin og CrossCampCrossCamp heitir bara CrossCamp til að heita eitthvað. Ótrúlega kom það okkur á óvart að ekki hafa mætt undir 50 manns þessi 6 skipti sem æfignar hafa farið fram. Á morgun á að vera ógeðis veður og eigum við enn og aftur von á því að ekki verði full mæting. En við skulum bíða róleg og sjá. Hingað til hefur verið gaman. ![]() menn og konur hafa komið saman og gert háar hnélyftur. ![]() menn og konur hafa gert burpees og armbeygjur kl 0600 ![]() og menn og konur hafa teygt vel á rassinum og baki eftir æfingar.... þetta er bara cool.. Svo kom það á daginn að við hjónin ákváðum að æfa almennilega fyrir Laugaveginn.. ekki seinna að byrja en það eru 9 vikur til stefnu. Svo við skelltum okkur í 30 km fjallaskokk yfir Þórdalsheiði. Eina sem við klikkuðum á var það að við vorum ekki með neina orku með okkur... 3 lítil corny duga ekki fullorðnu fólki í nokkra klukkutíma í aksjón. en svona var það á topnnum í bakaleiðinni. ![]() í dag eru smá strengir við rass og framan á lærum. þetta verður gaman Skrifað af Dandý 05.05.2012 15:42Laugavegurinn vika 2Já vika tvö liðin. Þetta var mjög skemmtileg vika CrossCampið alveg á milljón og obbsalega margir að mæta. EN við fórum hálft maraþon í dag og það var miklu betra en síðasta hlaup já okkur. Mér fannst ég ekki vera eins þung og síðast. Veðrið var ekki gott en það breytti engu því okkur leið svo vel og jú ég tala fyrir okkur bæði. Laugavegurinn var bærilegri í hugsun en fyrir viku síðan. Mér líður betur og hlakka meira og meira til. EN sem sagt CrossCampið er framar öllum vonum. Þessa þrjá daga hafa verið 60 manns að meðaltali að mæta með okkur á morgnana og ég bara dáist af öllum þeim sem eru með. Þetta er jú fyrir alla . ![]() þetta er hópurinn ![]() Skrifað af Dandý 28.04.2012 15:16LaugavegsundirbúningurJá Laugavegsundirbúningur er hafinn. Seint en örugglega. Ég fann það áðan að ég hef fleiri kíló á mér en vikur með mér fram að hlaupi, en hvað segir hugur og hvað segir heilsa. Jú- hugur segir iss piss, þú fórst þetta í fyrra með nýrifin liðbönd og lungnabólgu og massaðir þetta. Heilsa segir- ég er komin aftur góða mín svo taktu þér tak í mataræðinu. Málið er að ég heyri í þeim báðum, en áðan þegar ég skokkaði móti vindi og upp brekku fannst mér eins og ég myndi vinna verðlaun á grímuballi fyrir michelin búning ef ég mætti allsber. Eyddi þeim hugsunum og fór að pæla í þessu aðeins betur. - Ég get þetta- Ég verð ekki ein- Keli my love verður memm, Kobbi my brother verður memm og fleiri sem hafa farið þetta áður og í fyrsta sinn. Nú er að spýta í lófana girða sig í feita þrönga brók og rífa fram grænmetið og ávextina. Eftir 5 mánaða sterakúr þá er ég að sjálfsögðu pínu bjúguð en þá er bara að skíta oftar, pissa meira og brosa framan í heiminn. Amen. Skrifað af Dandý 07.04.2012 15:21Ljúfa lífVið hjónin borðuðum geggjaðan mat með fallegu fólki í gær. Elín Rán sá um að fæða okkur og halda okkur brosandi fram til 22:00 en þá var kominn tími til að labba heim. Við ákváðum að haga okkur og fara snemma í rúmið og nota daginn í dag í hreyfingu og ekki endilega sofa út. Við mættum ásamt nokkrum eldsprækum í ræktina og tókum hrottalegan tabata tíma sem var 2x16 og endaði á tröppupúli. Síðan slökuðum við á í pottinum og kysstumst eins og unglingar (nei). Eftir boost og góðan kaffibolla hjóluðum við yfir í Fellabæ með viðkomu í nammideildinni í bónus. Í Fellabæ var Bandýmót en kallinn var plataður í að taka þátt sem og hann gerði með stæl. Heimferðin var honum erfið. En það er bara svo gott að geta hreyft sig og njóta lífsins. Það sem eftir er dags munum við húka og hafa það næs,. :) Skrifað af Dandý 26.03.2012 12:52Alger bjániÉg er óttarlegur kjáni stundum, en það virðist vera gaman. Ég ákvað það að vera dugleg að slaka mér og jafna mig í fram á sumar. UH já eða hvað. Ég hætti að þjálfa á morgnana, sem eru tveir tímar á viku. En ég held áfram að skúra með börnunum sem eru 4 tímar á viku. Ég fór í liðveislu sem er ekkert mál og bara gaman tek ekki þá tíma með. Ég vinn við bókhald HThúsa en það er fyrirtækið mitt næstum. Ég skellti mér í þrjú fög í ME, sögu, sálfræði og íþróttafræði. Gengur vel en tekur að jafnaði 5 tíma á dag þar sem ég er mjög treg til að skilja þetta allt saman. Ég tók að mér að vera í stjórn frjálsíþróttadeildar Hattar sem er fínt. Ég tók að mér að sitja í vallarráði sem verður forvitnilegt og svo sagði ég já þegar ég var beðin um að sitja í einhverju ráði hjá ÚÍA. haha.. dásamlegt Skrifað af Dandý 18.03.2012 15:19sólin er sterkÍ dag brosti ég af því ég sá sólina. Vá hvað það er hrikalegt að vakna við svona fréttir. Í dag er ég að reyna að fá dóttir mína til að sjá og finna minningar sem eru henni kærar. Er Guð svona frekur á besta fólkið? Ég held það. Skil hann vel ef hann vill fá alla þá Mikkara sem eru til sem fyrst til sín. En nei annars, þetta á ekki að vera svona. Sem betur fer eigum við afskaplega góða ættingja þarna uppi sem taka vel á móti honum Svani þegar hann mætir á svæðið. Elsku kallinn. Ég ætla að hafa fjölskyldustund á eftir og hjúfra mig upp að öllum mínum yndislegu fjölskyldumeðlimum. Guð veri með ykkur öllum og líka hinum. Verum þakklát fyrir hvert sinn sem sólin sýnir sig, verum þakklát fyrir lífið sem við eigum, verum þakklát fyrir þá daga sem okkur líður vel. Grátum saman, hlæjum saman og verum saman. Ef þetta er algerlega samhengislaust blogg þá bar so be it. Skrifað af Dandý
Flettingar í dag: 21 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 21 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 36240 Samtals gestir: 14449 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 17:55:42 |
Eldra efni
Dandý Mikk og familý Nafn: Dandý Keli og krakkarTölvupóstfang: flatasel10@gmail.comMSN netfang: dandybeib@hotmail.comAfmælisdagur: kommonHeimilisfang: Flatasel 10Faðir: Hrafnkell ElíssonMóðir: Svanhvít Antonsdóttir MichelsenÖnnur vefsíða: www.blog.central.is/dandysUm: Breytingar á aldurstölum Dandý 38 Keli 34 Sandra 15 Erla 12 Elís 10Uppáhalds bíómynd(ir): white christmasUppáhalds tónlist: bílatónlistUppáhalds manneskjur: við sjálfUppáhalds matur: sláturEftirminnilegast: þegar við kynntumstBankanúmer: rangtTenglar |