Lífið eins og við sjáum það

Hugleiðingar Dandýar

20.05.2012 20:09

Ekki að grínast

ég er ekki að grínast - fyrst voru það báðar þvottavélarnar, svo var það uppþvottavélin, ofninn aldrei virkað vel, ísskápurinn óþolandi, úps, uppþvottavélin aftur, sjónvarpið, hitt sjónvarpið og núna er tölvan mín farin að kalla á hjálp.  Hmmm þetta er nú gaman sko.  Mér finnst ekki gaman að vaska upp. En mér finnst gaman að horfa á sjónóið.  plís ekki kommenta um að fara í labbitúr á kvöldin í staðin því mig langar það alls ekki. :)  já svona er það nú. 
Mývatnsmaraþon er eftir 2 vikur, jibbí..  samfélagsdagurinn er næstu helgi, jibbí... Sandran á afmæli eftir 3 vikur ég eftir 4 vikur. ..  smá pása.. svo kemur- hallormsstaðarhlaupið, ÚÍA hátíðin, laugavegshlaupið.. systkinabarnahittingur sem ég fer sennilega ekkert á, Barðsneshlaupið, Jökulsárhlaupið og svo hvíla.

16.05.2012 07:33

Veturkonungur

Það er ekki laust við að júllurnar á manni frjósi í þessu kuldakasti sem hrjáir okkur Íslendinga þessa dagana þegar maður fer út í morgunsárið. Kelling fór nú samt í föðurlandið að ofan og setti auka hita hlífar í hvern vasa en nei manni varð bara ekkert heitt. Í morgun mættu 30 manns og var ógisslega gaman.  Mér var samt kalt og ég er samt þreytt.  á morgun verða fáir enda er frídagur. :)  mæli samt með því að fólk sé ekkert að liggja of mikið á koddanum.   nenene

14.05.2012 19:23

Vorið er komið trallalla

svona er ísland í dag.


13.05.2012 15:29

Þórdalsheiðin og CrossCamp

CrossCamp heitir bara CrossCamp til að heita eitthvað. Ótrúlega kom það okkur á óvart að ekki hafa mætt undir 50 manns þessi 6 skipti sem æfignar hafa farið fram. Á morgun á að vera ógeðis veður og eigum við enn og aftur von á því að ekki verði full mæting. En við skulum bíða róleg og sjá. Hingað til hefur verið gaman.

menn og konur hafa komið saman og gert háar hnélyftur.

menn og konur hafa gert burpees  og armbeygjur kl 0600

og menn og konur hafa teygt vel á rassinum og baki eftir æfingar....   þetta er bara cool.. 

Svo kom það á daginn að við hjónin ákváðum að æfa almennilega fyrir Laugaveginn.. ekki seinna að byrja en það eru 9 vikur til stefnu. Svo við skelltum okkur í 30 km fjallaskokk yfir Þórdalsheiði. Eina sem við klikkuðum á var það að við vorum ekki með neina orku með okkur... 3 lítil corny duga ekki fullorðnu fólki í nokkra klukkutíma í aksjón.

en svona var það á topnnum í bakaleiðinni.

í dag eru smá strengir við rass og framan á lærum. 
þetta verður gaman

05.05.2012 15:42

Laugavegurinn vika 2

Já vika tvö liðin.  Þetta var mjög skemmtileg vika CrossCampið alveg á milljón og obbsalega margir að mæta.
EN  við fórum hálft maraþon í dag og það var miklu betra en síðasta hlaup já okkur. Mér fannst ég ekki vera eins þung og síðast. Veðrið var ekki gott en það breytti engu því okkur leið svo vel og jú ég tala fyrir okkur bæði.
Laugavegurinn var bærilegri í hugsun en fyrir viku síðan.  Mér líður betur og hlakka meira og meira til.

EN sem sagt CrossCampið er framar öllum vonum. Þessa þrjá daga hafa verið 60 manns að meðaltali að mæta með okkur á morgnana og ég bara dáist af öllum þeim sem eru með.  Þetta er jú fyrir alla .


þetta er hópurinn

28.04.2012 15:16

Laugavegsundirbúningur

Já Laugavegsundirbúningur er hafinn. Seint en örugglega. Ég fann það áðan að ég hef fleiri kíló á mér en vikur með mér fram að hlaupi, en hvað segir hugur og hvað segir heilsa.
Jú- hugur segir iss piss, þú fórst þetta í fyrra með nýrifin liðbönd og lungnabólgu og massaðir þetta.
Heilsa segir- ég er komin aftur góða mín svo taktu þér tak í mataræðinu.
Málið er að ég heyri í þeim báðum, en áðan þegar ég skokkaði móti vindi og upp brekku fannst mér eins og ég myndi vinna verðlaun á grímuballi fyrir michelin búning ef ég mætti allsber.
Eyddi þeim hugsunum og fór að pæla í þessu aðeins betur. - Ég get þetta- Ég verð ekki ein- Keli my love verður memm, Kobbi my brother verður memm og fleiri sem hafa farið þetta áður og í fyrsta sinn.  Nú er að spýta í lófana girða sig í feita þrönga brók og rífa fram grænmetið og ávextina.  Eftir 5 mánaða sterakúr þá er ég að sjálfsögðu pínu bjúguð en þá er bara að skíta oftar, pissa meira og brosa framan í heiminn.  Amen.

07.04.2012 15:21

Ljúfa líf

Við hjónin borðuðum geggjaðan mat með fallegu fólki í gær. Elín Rán sá um að fæða okkur og halda okkur brosandi fram til 22:00 en þá var kominn tími til að labba heim. Við ákváðum að haga okkur og fara snemma í rúmið og nota daginn í dag í hreyfingu og ekki endilega sofa út.
Við mættum ásamt nokkrum eldsprækum í ræktina og tókum hrottalegan tabata tíma sem var 2x16 og endaði á tröppupúli. Síðan slökuðum við á í pottinum og kysstumst eins og unglingar (nei).
Eftir boost og góðan kaffibolla hjóluðum við yfir í Fellabæ með viðkomu í nammideildinni í bónus. Í Fellabæ var Bandýmót en kallinn var plataður í að taka þátt sem og hann gerði með stæl. Heimferðin var honum erfið. 
En það er bara svo gott að geta hreyft sig og njóta lífsins.  Það sem eftir er dags munum við húka og hafa það næs,.  :)

26.03.2012 12:52

Alger bjáni

Ég er óttarlegur kjáni stundum, en það virðist vera gaman. Ég ákvað það að vera dugleg að slaka mér og jafna mig í fram á sumar. UH já eða hvað. Ég hætti að þjálfa á morgnana, sem eru tveir tímar á viku. En ég held áfram að skúra með börnunum sem eru 4 tímar á viku. Ég fór í liðveislu sem er ekkert mál og bara gaman tek ekki þá tíma með. Ég vinn við bókhald HThúsa en það er fyrirtækið mitt næstum. Ég skellti mér í þrjú fög í ME, sögu, sálfræði og íþróttafræði. Gengur vel en tekur að jafnaði 5 tíma á dag þar sem ég er mjög treg til að skilja þetta allt saman. Ég tók að mér að vera í stjórn frjálsíþróttadeildar Hattar sem er fínt. Ég tók að mér að sitja í vallarráði sem verður forvitnilegt og svo sagði ég já þegar ég var beðin um að sitja í einhverju ráði hjá ÚÍA.  haha..  dásamlegt
  • 1
Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 44
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 36452
Samtals gestir: 14520
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 13:48:42

Dandý Mikk og familý

Nafn:

Dandý Keli og krakkar

MSN netfang:

dandybeib@hotmail.com

Afmælisdagur:

kommon

Heimilisfang:

Flatasel 10

Faðir:

Hrafnkell Elísson

Móðir:

Svanhvít Antonsdóttir Michelsen

Um:

Breytingar á aldurstölum Dandý 38 Keli 34 Sandra 15 Erla 12 Elís 10

Uppáhalds bíómynd(ir):

white christmas

Uppáhalds tónlist:

bílatónlist

Uppáhalds manneskjur:

við sjálf

Uppáhalds matur:

slátur

Eftirminnilegast:

þegar við kynntumst

Bankanúmer:

rangt

Tenglar