|
Lífið eins og við sjáum það Hugleiðingar Dandýar |
|
Færslur: 2012 Febrúar28.02.2012 06:31myrkurÞað er ennþá myrkur úti. Ég held að það sé bara voðalega gaman. En ég þori ekki út á morgnana ein vegna þess að ég er myrkfælin. Ég þori varla að fara ein að pissa á næturna því ég er svo hrædd og er svo vel gift að maðurinn minn fylgir mér oftar en ekki ef þess er þörfin. Bakið. Já ég fór í myndatöku vegna verkja neðarlega í baki eða eiginlega við spjaldhrygginn þar sem neðstu hryggjarliðirnir festa sig milli spjaldbeina. Finn dofatilfinningu í hægri fæti og þetta hefur hrjáð mig um nokkurt skeið en það hefur versnað. Verra ef ég tek sprettaæfingu. Óli bak doksi vill meina að það sé eitthvað að gerast sem tengist losi. En þar sem ekki er hægt að finna út úr þvi hvort ég er góð- slæm eða æðisleg meðan eg er með pillukokteilinn í hámarki þá bíður þessi skoðun betri tíma. Allur tími góður annar bara betri. Kallinn minn var ræstur kl 6 til að fara í Tabata. Ég læt það vera enn um sinn en sit þess í stað og prjóna vettlinga, blogga og geri handa honum afskaplega hollann og góðann morgunmat á meðan og skelli í eina köku. ah já annað kvöld verður boðið í afmæli Elísar Alexanders en hann er að verða 11 ára gamall þessi yndislegi drengur. Skrifað af Dandý 25.02.2012 20:21Dagurinn í dag.Í dag var góður dagur. Við Sandra fórum á rúntinn, heimsóttum mömmu og aðrar kellingar í saumastúss á Eyjólfsstöðum. Flottar konur að gera mjög fallega hluti. Síðan tókum við myndir. ![]() fallegi dúkurinn hennar mömmu. ![]() einbeittar í tafli. ![]() fagnar vorfílingnum. ![]() ég að vera töffari. ![]() sandra að stökkva af græju ![]() falleg stelpa ![]() við mæðgur.. við elskum hvora aðra ![]() Dagsverkið er lokið ![]() þetta var góður dagur.. Við erum bestar. Skrifað af Dandý 24.02.2012 00:26bloggibloggJá sorrý mínu einu og sönnu aðdáendur. Ég hef bara verið ansi busy við allskona vitleysu undanfarið og algerlega gleymt að blogga. Eða sleppt. Datt aðeins inn á hospital eins og venjulega þegar ég þarf ekkert á því að halda og svo aftur og svo kom ég heim í dag. Þetta hlýtur að fara að lagast. Er búin að lýsa minni krónísku drullu fyrir um það bil 10 manns í dag og í gær og margir búnir að fá að sjá inn í mig upp í mig, fá úr mér blóð og taka myndir af mér. En mér fannst það bara gaman. Á leiðinn norður og meðan ég beið milli þeirra sem ólmir vildu á mér þukla þá prjónaði ég einar barnahosur, einar fullorðins hosur og einn og hálfan vettling. allt svona afgangaprjón sem verður ansi bjútífúl og skemmtilegt. Eins teiknaði ég upp einn mynstur á jólasokka, vettlinga og húfu í stíl. það er ekki eins og manni leiðist þó maður sé á spítala. Nema hvað. Þetta lítur betur út, ekkert of vel en virðist ætla að lagast og hafast fyrir rest. Er orðin frekar ör og sveitt og kannski dálítið uppstökk af sterunum en mér eiginlega finnst það bara fyndið og smá gaman en bara stundum. Best að skoða þetta í því gleði ljósi sem okkur býðst. Ég spurði minn doksa sem er bestur í öllum heimi hvort mér væri óhætt að fara á heilsuhótelið til Helgu sys og hann bara hreinlega mælti með því að ég færi þangað í viku. En ég má alls ekki láta skola á mér görnina því ég er með svo mörg sár þar. :) það er allt í lagi ég ætla ekki að láta setja neitt upp í rassinn á mér nema það sé nauðsynlegt. Oh það er svo gaman að vera ég. Ég keypti mér krem aður en ég fór heim í dag. Kallinn var auðvitað með í för og sagði þegar ég borgaði sjálf kremið mitt. Uss þetta er svo dýrt að þetta verður bara konudagsgjöfin þín. :) hahaha.. ég dó auðvitað úr hlátri. En lifnaði svo við aftur. Ég fer í lokapróf í þjálffræði áfanga á mánudag. Svo tekur við meiri þjálffræði, sálfræði og eitthvað annað á næstu spönn.. Ég verð sennilega stúdent á 10 ára brúðkaupsafmælinu mínu sem mér finnst mjög cool. það eina sem ég leiði mig yfir þegar ég er svona til heilsunnar er að ég get ekki hlaupið eins og venjulega og jú ég stækka á sterunum. En ég er bara fallegri fyrir vikið og hef þá einhverju að stefna að eftir þessa pillutörn. Um helgina ætlar minn bóndi á Kverkfjöll með öðrum köllum sem vilja gista saman, hehe, litlu börnin mín tvö fara til Rvk og keppa í frjálsum. Sandra ætlar að halda upp á afmæli vinar síns sem er munaðarlaus (mamma hans og pabbi búa í RVK) á morgun. það verður kjúlla salat og kaka. En á laugardag verður algerlega minn dagur. Slökun, prjón, heimsóknir, prjón, slökun. og sennilega alls engin slökun ef ég þekki sjálfa mig rétt. Takk fyrir að vilja lesa mig. Skrifað af Dandý 12.02.2012 20:21HandavinnanÓkei um miðjan janúar ákvað ég að vera snemma í jóla- og fæðingargjöfum. Mig vantaði gjöf fyrir sumarið eða jólin þá kom þessi ![]() svo langaði mig í peysu og þá kom þessi. ![]() hún passar og er mjög hlý svo vantaði eina bleika, en ég á eftir að klippa og kanta,, þetta á að vera jakkapeysa á 3ja mán. ![]() og núna er bara næsta flík á leiðini.. um að gera að nota tímann sem maður hefur.. Skrifað af Dandý 12.02.2012 20:09peysurég er að vinna í þessu með peysurnar. :) vil hafa þær nývegnar og lagðar á mynd. Í kvöld var lambakjötið snætt með soðnum gulrófum og döðlum, dásemd. Nú er í ofni kaka með niðursoðnum ávöxtum sem verður snædd eftir smá með ís. oh hvað ég hlakka til. Skrifað af Dandý 10.02.2012 05:31ó mig aumaJá sko síðustu tvær nætur hafa verið og eru enn ekki alveg að gera það fyrir mig. Ég bara get ekki sofnað. Klósettferðir eru fleiri en andardrættir og mig langar bara að rotast. Allir anda of hátt, ísskápurinn er með læti, klukkurnar tikka hærra en í hallgrímskirkju og ég er bara svona frík með galopin augun skoðandi kökuuppskriftir. Fór fram úr og ætlaði að baka eina köku handa fólkinu mínu í morgunmat, EN þá vantar mig allt í bakstur, mundi það um leið og ég opnaði baksturs skúffuna að það fór allt í stóra bakstursdaginn þarna um daginn :). Skiptir ekki máli, er búin með tvær peysur og er byrjuð á þriðju sem verður svona tilrauna peysa á ponkulitla stelpu eða ponkulitinn strák. Hún er bleik. Ég er búin að fletta sjónvarpinu aftur og aftur og hef séð allt sem er í boði. EN mér líður ekkert illa þannig. Sterarnir reyndar plata mann gríðarlega OG ég átti von á hringingu áðan (um 18) þannig að það hefur líka haft áhrif að fá ekki þessa fjandans hringingu. Ah. Mig langar svo að borða eitthvað mikið. Á grillaðan kjúlla og fallegt salat, en það ekkert spennandi kl rúmlega 5 á morgnana. Ég ætla að setja myndir af peysunum mínum hér inn og fá svona VÁ GEGGJAÐ FLOTT komment frá ykkur sem kommið hja´mér. Dædædædæ. Bara svona fyrir Egóið mitt sem fer ört lækkandi þessa dagana. Hver vill koma í heimsókn. ?????' Skrifað af Dandý 07.02.2012 07:53Gleðin er góðÞað hefur glatt litla hjarta sonarins ótrúlega mikið að fá 3 stk joe boxer nærbuxur frá mömmu sinni síðasta föstudag. Hann skoðar þær aftur og aftur, er búinn að ákveða hvenær hann verður i hvaða lit við hvaða föt og hvaða tækifæri. það er svo gaman þegar maður gefur einhverjum eitthvað, þó svo það sé svona smotterí og það er þakklæti og gleði sem fylgir gjöfinni. Mér finnst alltaf skrítið þegar ég rétti gjöf og það er ekki sagt takk og ég fæ ekki bros. Því það þarf enginn að gefa neitt það er bara svo gott að gefa og alltaf betra ef það skilar einhverjum smá brosi. Jæja gleðipistillinn búinn. Það tók á að vakna kl 0600 og vera með tíma, var ekki með í tímanum heldur sagði til og það voru allir að standa sig mjög vel. Enn er mjög góð mæting í tímana og vel tekið á því. Ég sjálf þarf að taka því rólegra þessa viku svo ég einbeiti mér að setuvinnu og smá joggi eða gönguferðum. Uh já er líka að stytta gardínur og það tekur sma´tíma þar sem þetta er fokkíngs krumpu nælon efni og ég vil að allt sé jafnt. :) auðvitað vil ég það eins og hver önnur kona. Ég ætla að leggjast í rúmið þegar börnin fara í skólann í dag og hvíla mig. Hvíla og hvíla skilar besta árangrinum að bata þessa stundina. Skrifað af Dandý 05.02.2012 20:29steroidsJæja, þá er gellan eina ferðina enn komin á dúndrandi sterakúr. Mér þykir það ekki gaman, brjóstin túttna, maginn stækkar, andlitið verður appelsínugult og bólgið. Ég verð ofvirkari, get ekki sofið og finn alls staðar til. EN eins og alltaf þá trúi ég því að eftir á verði þetta betra. Slapp þó við innlögn fram á fimmtudag og þá sjáum við til hvernig gengur. það er ekki auðvelt að eiga að borða svona margar töflur sem gera mann tjúll og eiga svo að slappa af.. Halló hver fattaði upp á þessu. Keypti mér nýjan kjól svo þetta er allt í lagi. Skrifað af Dandý
Flettingar í dag: 21 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 21 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 36240 Samtals gestir: 14449 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 17:55:42 |
Eldra efni
Dandý Mikk og familý Nafn: Dandý Keli og krakkarTölvupóstfang: flatasel10@gmail.comMSN netfang: dandybeib@hotmail.comAfmælisdagur: kommonHeimilisfang: Flatasel 10Faðir: Hrafnkell ElíssonMóðir: Svanhvít Antonsdóttir MichelsenÖnnur vefsíða: www.blog.central.is/dandysUm: Breytingar á aldurstölum Dandý 38 Keli 34 Sandra 15 Erla 12 Elís 10Uppáhalds bíómynd(ir): white christmasUppáhalds tónlist: bílatónlistUppáhalds manneskjur: við sjálfUppáhalds matur: sláturEftirminnilegast: þegar við kynntumstBankanúmer: rangtTenglar |